Ég er svo pirruð þessa dagana að ég
verð hreinlega að fá útrás hér. Hún Heiða Birna getur ekki
hætt að tala um að eignast barn - sí og æ, æ og sí hlustar
maður á...ohh þau eru svo sæt, ohh ég ætla búa til eitt
stykki á morgun...Jesús hvað þetta getur verið pirrandi. Svo
veit ég líka alveg hver mun sitja uppi með krakkaræsknið - nú
auðvitað ég! Heiða hefur ekkert tíma til að sjá um
svona skríbi, hún er jú einu sinni að sauma segldúk úr
laufblöðum! Svo gæti þetta líka orðið svo ljótt barn,
það er ef það fengi genin frá pabbanum
Þannig að plís Eva, nennirðu
að leggja fyrir Heiðu þessi próf:
Fituprófið
Smurðu hnetusmjöri á sófann og aðeins upp á gardínurnar. Settu
nokkrar kjötbollur á bak við sófann og láttu þær vera þar yfir
sumarið.
Leikfangaprófið
Náðu í kassa með 25 kílóum af Legó-kubbum. Fáðu vin þinn til að
dreifa vel úr kubbunum á gólfið í íbúðinni. Láttu binda fyrir augun
á þér. Reyndu svo að fara frá svefnberginu og inn í eldhús og aftur
til baka. Það er bannað að vera í skóm og alveg bannað að æpa því
það getur vakið barnið um nætur.
Stórmarkaðsprófið
Fáðu lánað eitt dýr af millistærð (t.d. geit) og farðu með hana í
næsta stórmarkað að versla. Hafðu auga með geitinni allan tímann og
borgaðu fyrir allt sem hún étur eða eyðileggur.
Fataprófið
Hefurðu prófað að klæða tveggja ára gamalt barn í föt? Fáðu þér
stóran, lifandi og spriklandi kolkrabba. Troddu honum í lítið
innkaupanet og passaðu að hafa alla armana inni í pokanum.
Matarprófið
Keyptu þér stóra plastkönnu. Fylltu hana til hálfs með vatni og
hengdu hana svo upp í loftið í snúru. Láttu könnuna sveiflast til
og frá eins og pendúl. Reyndu nú að koma einni matskeið af
hafragraut niður um stútinn á könnunni um leið og þú leikur flugvél
með skeiðinni. Helltu svo öllu innihaldinu á gólfið.
Næturprófið
Saumaðu þér lítinn poka úr sterku efni og fylltu hann með 4-5
kílóum af sandi. Klukkan 15 tekur þú pokann upp og byrjar að ganga
um gólf með hann um leið og þú raular. Þessu heldur þú áfram til
kl. 21. Leggðu þá pokann frá þér og stilltu vekjaraklukkuna á 22.
Þá þarftu að vakna, ná í sandpokann og syngja öll þau lög sem þú
hefur mögulega heyrt um ævina.
Semdu svo 10-12 ný lög og syngdu þau til kl. 4 um morguninn á
meðan þú gengur um gólf með pokann. Stilltu vekjaraklukkuna á 5.
Vaknaðu og taktu til morgunmat. Gerðu þetta alltaf 5 daga í röð og
líttu glaðlega út!
Sköpunargáfuprófið
Fáðu þér eggjabakka. Búðu til krókódíl úr honum með aðstoð skæra og
málningar. Fáðu þér svo tóma klósettrúllu og búðu til fallegt
jólaljós úr henni. Þú mátt aðeins nota límband og álpappír. Að
lokum skaltu fá þér tóma mjólkurfernu, borðtennisbolta og tóman
Kornflakes-pakka. Búðu til alvöru eftirlíkingu af
Eiffel-turninum.
Bílprófið
Gleymdu því að fá þér BMW og fáðu þér station-bíl (þið vitið þessi
löngu að aftan til að geyma vagna, kerrur og alls konar
fylgihluti!) Keyptu þér súkkulaðiís í brauði og settu hann í
hanskahólfið. Láttu hann vera þar.
Finndu krónu. Settu hana inn í geislaspilarann í bílnum. Fáðu
þér stóran pakka af kexkökum og myldu þær allar í aftursætið. Nú er
bíllinn tilbúinn!
Þolpróf kvenna
Fáðu lánaðan stóran grjónapúða og festu hann framan á magann á þér.
Þú getur notað öryggisnælur og nælt pokanum í fötin þín. Hafðu
pokann framan á þér í 9 mánuði. Að þeim tíma liðnum geturðu
fjarlægt 1/10 af innihaldi pokans ? 9/10 verða eftir.
Þolpróf karla
Farðu inn í næsta apótek. Settu seðlaveskið þitt opið á borðið og
segðu apótekaranum að taka eins og hann vill. Farðu nú í næsta
stórmarkað. Farðu inn á skrifstofu og gerðu samning við eigandann
um að launin þín verði lögð inn á reikning búðarinnar um hver
mánaðamót. Keyptu þér dagblað. Farðu með það heim og lestu það í ró
og næði. Í síðasta sinn!
Lokaprófið
Komdu þér í samband við par sem á barn. Útskýrðu fyrir þeim hvernig
þau geta bætt sig í agamálum, þolgæðum, þolinmæði, klósettþjálfun
og borðsiðum barnsins. Legðu áherslu á að þau megi aldrei láta
barnið sitt hlaupa um eftirlitslaust. Njóttu kvöldsins, því þú munt
aldrei aftur hafa rétt svör við öllu.
Ertu enn tilbúin til að eignast
barn???